top of page
Search

Yfirlýsing frá SVEIT (samtök fyrirtækja á veitingamarkaði) vegna hertra aðgerða ríkisstjórnar

umsokn

Samtökin lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum eftir að tilkynnt var, eftir ríkisstjórnarfund í dag, að enn hertari aðgerðir taki gildi 23.desember og enn og aftur án þess að tilkynnt sé um nokkur úrræði fyrir greinina samhliða skerðingu á starfsemi.


Krefst SVEIT þess að viðurkennt verði mikilvægi greinarinnar með því að takast á við þann alvarlega vanda sem blasir við með beinum, hnitmiðuðum og sértækum úrræðum í þeim tilgangi að bæta það tjón sem hertar sóttvarnaraðgerðir hafa haft á rekstrarumhverfi, samkeppnishæfni og aðdráttarafl veitingageirans.


Undanfarin ár hafa verið lagðar þungar hömlur á starfsemi greinarinnar sem hafa lýst sér í miklu brottfalli og óvissu.


Vonbrigði SVEIT vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar varðandi hertar aðgerðir þann 21.desember lútafyrst og fremst að:


• Vöntun úrræða. Að bein sértæk úrræði séu ekki kynnt á sama tíma og hertar aðgerðir skapar enn meiri óvissu og ófyrirsjáanleika fyrir þá 1.000 rekstraraðila og 10.000 starfsmenn sem starfa innan veitingageirans.


• Tekjutap. Ljóst er að tekjutap verður enn meira en búist var við. Fyrir yfirvofandi takmarkanir

var spáð 40 milljarða tekjutapi en nú þegar jólunum hefur verið aflýst, annað árið í röð er

ljóst að það verður enn hærra. Jól og áramót eru gríðarlega annasöm vertíð fyrir

veitingageirann og á þessum 4-6 vikum hefur mikill meirihluti fyrirtækja safnað sér tekjum til

að takast á við fyrsta ársfjórðung næsta árs sem er sá rólegasti í veitingrekstri.


• Viðbragðstíminn er enginn, við það eykst skuldasöfnun enn frekar og hratt. Ljóst er að í

kjölfar aðgerða geta rekstraraðilar ekki brugðist nógu hratt við til að geta minnkað kostnað

sem leiðir til taps. Óboðlegt er að rekstraraðilar taki það þunga högg sem afleiðing

sóttvarnaraðgerða hefur með beinum hætti á starfsemi, starfsumhverfi og ekki síst

starfsöryggi greinarinnar.


Ástandið á veitingamarkaði er gríðarlega alvarlegt, þar sem sóttvarnaraðgerðir hafa frá degi eitt, haft bein áhrif á starfsemi þar sem rauði þráður þeirra er að takmarka að fólk komi saman þar sem vínveitingar eru seldar.


Nú þegar við siglum inn í þriðja ártal Covid-19 er varla hægt að tala um fordæmalausa tíma. Er þaðósk SVEIT að viðeigandi aðgerðaáætlun verið hönnuð með það fyrir augum að rekstraraðilar öðlist

öryggi og stöðuleika þegar gripið er til sóttvarnaraðgerða. Þar sem viðeigandi

 
 
 

Comments


bottom of page