SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir
- umsokn
- 4 days ago
- 1 min read
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT, segir samtökin ekki muna þurfa að greiða dagsektir. Samtökin muni afhenda Samkeppniseftirlitinu öll gögn sem þau vilja. „Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála er SVEIT mikil vonbrigði. Í honum felst að Samkeppniseftirlitið getur haldið áfram rannsókn málsins,“ segir Einar í yfirlýsingu vegna málsins til fréttastofu. Hann segir það þvert á væntingar SVEIT.
„Frá upphafi hefur SVEIT tekið skýrt fram að samtökin hafi ekkert að fela og muni afhenda öll gögn, ef niðurstaða áfrýjunarnefndar yrði á þennan veg. Gögnin hafa lengi verið tilbúin til afhendingar og verður komið til Samkeppniseftirlitsins vel fyrir 6. október næstkomandi. Engar líkur eru því á að SVEIT muni greiða dagsektir,“ segir hann enn fremur.
Greint var frá því fyrr í dag að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefði staðfest að dagsektir upp á milljón krónur skyldu leggjast á SVEIT ef félagið afhenti Samkeppniseftirlitinu ekki gögn í seinasta lagi 6. október. Gögnin snúa að rannsókn á meintum samkeppnisbrotum.
Frá þessu var greint í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins. Það var þann 11. júní sem
Samkeppniseftirlitið tók ákvörðun um að leggja dagsektir á SVEIT vegna brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Samtökin höfðu haldið því fram að málið ætti ekki heima á borði eftirlitsins.
Málið snýr að því að í mars síðastliðnum hafi Samkeppniseftirlitinu borist kvörtun frá Alþýðusambandi Íslands, Eflingu og Starfsgreinasambandi Íslands vegna „ólögmæts verðsamráðs fyrirtækja á veitingamarkaði og ólögmæts verðsamráðs innan Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði“. Var því haldið fram að gerð SVEIT á einhliða kjarasamningi við félagið Virðingu, þar sem kveðið væri á um launakjör á veitingamarkaði, hafi farið gegn samkeppnislögum.

Comments